Chat with us, powered by LiveChat

Vinnuslys

Slysatrygging launþega er skyldutrygging sem tryggð er í kjarasamningum. Ef þú hefur orðið fyrir líkamstjóni vegna slyss við störf þín eða á leið í eða úr vinnu áttu rétt á bótum úr slysatryggingu launþega. Einnig áttu rétt á bótum frá Sjúkratryggingum Íslands ef metin örorka þín er 10% eða hærri. Rétturinn til bóta úr slysatryggingu launþega og hjá Sjúkratryggingum Íslands er til staðar óháð sök. 

Verði vinnuslys rakið til atvika sem vinnuveitandi eða aðrir starfsmenn bera ábyrgð á, þá er hægt að sækja bætur á grundvelli skaðabótalaga til vinnuveitanda eða úr ábyrgðartryggingu vinnuveitenda.

Mjög mikilvægt er að slysin séu tilkynnt strax, t.d. til Sjúkratrygginga Íslands, Vinnueftirlits ríkisins og tryggingafélaga.

Leitaðu til okkar hjá Fébótum og kannaðu réttarstöðu þína þér að kostnaðarlausu svo þú glatir ekki rétti þínum vegna tómlætis eða fyrningar.


Bætur úr framangreindum tryggingum eru eftirfarandi bótaliðir:

 

1.   Dagpeningar

2.   Bætur fyrir læknisfræðilega örorku


 

Ef vinnuslys er skaðabótaskylt, eiga launþegar eftirtalinn rétt:

 

1.   Útlagður kostnaður

Útlagður kostnaður vegna slyssins, s.s. kostnaður vegna læknisheimsókna, sjúkraþjálfunar, lyfja o.fl.


2.   Tímabundið atvinnutjón

Þeir sem missa úr vinnu vegna slyss eiga rétt á greiðslu vegna tekjumissis frá tryggingarfélaginu eftir að launarétti lýkur hjá vinnuveitanda, þar til stöðugleikamarki er náð.


3.   Þjáningarbætur

Staðlaðar bætur fyrir þann tíma sem tjónþoli telst vera veikur vegna slysaáverkanna.


4.   Miskabætur

Staðlaðar bætur með hliðsjón af því hversu miklir slysaáverkarnir eru út frá læknisfræðilegu sjónarmiði svo og með hliðsjón af þeim erfiðleikum sem þeir valda í lífi tjónþola.


5.   varanleg örorka

Valdi slys varanlegri skerðingu á starfsorku greiðir tryggingafélag bætur vegna varanlegrar örorku. Um er að ræða bætur fyrir framtíðartekjutap vegna varanlegrar skerðingar á aflahæfi sem slysaáverkarnir hafa í för með sér. Slíkt tekjutap reiknast út frá aldri tjónþola og tekjum hans síðastliðin þrjú ár fyrir slysið. Miðað er við ákveðin lámarkslaun í þeim tilfellum, sem tjónþoli hefur verið tekjulítill síðustu þrjú ár fyrir slys.


6.   Lögmannskostnaður

Bótagreiðandi greiðir stærstan hluta lögmannskostnaðar þeirra sem slasast í vinnuslysum.


Sendu okkur fyrirspurn
og við höfum samband um hæl.

Þú getur einnig haft samband símleiðis í síma 547 4700
eða sent okkur fyrirspurn á febaetur@febaetur.is.