Chat with us, powered by LiveChat

Sjóslys

Sjómenn eiga víðtækan bótarétt verði þeir fyrir líkamstjóni í slysi við vinnu sína. Sjómenn eru ,,kaskótryggðir” við störf sín á sjó og fá greiddar fullar bætur fyrir líkamstjón sem þeir verða fyrir við vinnuslys, óháð því hver aðdragandi slyss kann að vera. Sjómenn þurfa því ekki að sýna fram á að slysið megi rekja til atvika sem vinnuveitandi ber ábyrgð á, svo sem það að aðbúnaður og vinnubrögð hafi ekki verið í lagi, tæki hafi verið bilað eða gallað eða vegna mistaka annarra starfsmanna.

Mikilvægt er að slysin séu tilkynnt sem fyrst til viðeigandi aðila, svo sem vinnuveitenda og Sjúkratrygginga Íslands.

Leitaðu til okkar hjá Fébótum og kannaðu réttarstöðu þína þér að kostnaðarlausu svo þú glatir ekki rétti þínum vegna tómlætis eða fyrningar.


Bótaskylt tryggingarfélag á að bæta þeim sem lenda í sjóslysum eftirtalið:

 

1.   Útlagður kostnaður

Útlagður kostnaður vegna slyssins, s.s. kostnaður vegna læknisheimsókna, sjúkraþjálfunar, lyfja o.fl.


2.  TÍMABUNDIÐ ATVINNUTJÓN

Þeir sem missa úr vinnu vegna slyss eiga rétt á greiðslu vegna tekjumissis. Greiddar eru bætur fyrir tekjutap frá slysdegi eftir að veikindaréttur hjá vinnuveitanda er tæmdur og þar til tjónþoli verður vinnufær aftur. En annað gildir ef ekki er að vænta frekari bata.


3.  ÞJÁNINGABÆTUR

Staðlaðar bætur fyrir þann tíma sem tjónþoli telst vera veikur vegna slysaáverkanna.


4.  MISKABÆTUR   

Staðlaðar bætur með hliðsjón af því hversu miklir slysaáverkarnir eru út frá læknisfræðilegu sjónarmiði svo og með hliðsjón af þeim erfiðleikum sem þeir valda í lífi tjónþola.


5.  VARANLEG ÖRORKA

Valdi slys varanlegri skerðingu á starfsorku greiðir tryggingafélag bætur vegna varanlegrar örorku. Um er að ræða bætur fyrir framtíðartekjutap vegna varanlegrar skerðingar á aflahæfi sem slysaáverkarnir hafa í för með sér. Slíkt tekjutap reiknast út frá aldri tjónþola og tekjum hans síðastliðin þrjú ár fyrir slysið. Miðað er við ákveðin lámarkslaun í þeim tilfellum, sem tjónþoli hefur verið tekjulítill síðustu þrjú ár fyrir slys.


6.   LÖGMANNSKOSTNAÐUR

Tryggingafélag greiðir stærstan hluta lögmannskostnaðar þeirra sem slasast í sjóslysum.


7.   ANNAÐ FJÁRTJÓN

Valdi slys öðru fjártjóni en að framan greinir, á hinn slasaði rétt á að fá það bætt frá viðkomandi tryggingafélagi.


Sendu okkur fyrirspurn
og við höfum samband um hæl.

Þú getur einnig haft samband símleiðis í síma 547 4700
eða sent okkur fyrirspurn á febaetur@febaetur.is.