Chat with us, powered by LiveChat

Umferðarslys

Umferðarslys eru öll slys sem verða af völdum skráningarskyldra ökutækja. Í þann flokk falla bílar, skráningarskyld bifhjól, dráttarvélar, vélsleðar og önnur torfærutæki.

Líkamstjón sem rekja má til notkunar á bifreiðum er bótaskylt úr tryggingu bifreiðarinnar. Því skulu tjónþolar, hvort sem um er að ræða ökumenn vélknúinna ökutækja, farþega, reiðhjólamenn eða gangandi vegfarenda að leita álits á rétti sínum vegna slysa sem þeir verða fyrir í umferðinni. Ef það var slys, þá skapast réttur til bóta.

Algengur misskilningur er að ökumaður bifreiðar sem veldur sjálfur slysi og slasast jafnframt, eigi ekki bótarétt úr slysatryggingu ökumanns og eiganda. Það er rangt. Ekki skiptir máli hvort tjónþoli var í rétti eða órétti þegar hann lenti í slysinu.

Leitaðu til okkar hjá Fébótum og kannaðu réttarstöðu þína þér að kostnaðarlausu svo þú glatir ekki rétti þínum vegna tómlætis eða fyrningar.


Bótaskylt tryggingarfélag á að bæta þeim sem lenda í umferðarslysi eftirtalið:

 

1.

Útlagður kostnaður

Útlagður kostnaður vegna slyssins, s.s. kostnaður vegna læknisheimsókna, sjúkraþjálfunar, lyfja o.fl.


2.

TÍMABUNDIÐ ATVINNUTJÓN

 Þeir sem missa úr vinnu vegna slyss eiga rétt á greiðslu vegna tekjumissis. Greiddar eru bætur fyrir tekjutap frá slysdegi eftir að veikindaréttur hjá vinnuveitanda er tæmdur og þar til tjónþoli verður vinnufær aftur. En annað gildir ef ekki er að vænta frekari bata.

  


3.

ÞJÁNINGABÆTUR

Staðlaðar bætur fyrir þann tíma sem tjónþoli telst vera veikur vegna slysaáverkanna.


4.

MISKABÆTUR     

Staðlaðar bætur með hliðsjón af því hversu miklir slysaáverkarnir eru út frá læknisfræðilegu sjónarmiði svo og með hliðsjón af þeim erfiðleikum sem þeir valda í lífi tjónþola.


5.

VARANLEG ÖRORKA

Valdi slys varanlegri skerðingu á starfsorku greiðir tryggingafélag bætur vegna varanlegrar örorku. Um er að ræða bætur fyrir framtíðartekjutap vegna varanlegrar skerðingar á aflahæfi sem slysaáverkarnir hafa í för með sér. Slíkt tekjutap reiknast út frá aldri tjónþola og tekjum hans síðastliðin þrjú ár fyrir slysið. Miðað er við ákveðin lámarkslaun í þeim tilfellum, sem tjónþoli hefur verið tekjulítill síðustu þrjú ár fyrir slys.


6.

LÖGMANNSKOSTNAÐUR

Tryggingafélag greiðir stærstan hluta lögmannskostnaðar þeirra sem slasast í umferðarslysum.


7.

ANNAÐ FJÁRTJÓN

Valdi slys öðru fjártjóni en að framan greinir, á hinn slasaði rétt á að fá það bætt frá viðkomandi tryggingafélagi.


Sendu okkur fyrirspurn
og við höfum samband um hæl.

Þú getur einnig haft samband símleiðis í síma 547 4700
eða sent okkur fyrirspurn á febaetur@febaetur.is.