Chat with us, powered by LiveChat

Læknamistök

Ef þú hefur orðið fyrir líkamstjóni af völdum meðferðar heilbrigðisstarfsmanns, hvort sem um er að ræða á sjúkrahúsi eða einkastofu, gætir þú átt rétt á bótum samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Ekki þarf sýna fram á að tjónið megi rekja til sakar (gáleysis) starfsmannsins svo að bótakrafa stofnist, heldur getur verið um að ræða fylgikvilla meðferðar eða rannsóknar sem er meiri en svo að sanngjarnt teljist að sjúklingurinn beri hann bótalaust. 

Leitaðu til okkar hjá Fébótum og kannaðu réttarstöðu þína þér að kostnaðarlausu svo þú glatir ekki rétti þínum vegna tómlætis eða fyrningar.


Bótaskylt tryggingarfélag á að bæta þeim sem lenda í læknamistökum eftirtalið:

 

1.  TÍMABUNDIÐ ATVINNUTJÓN

Þeir sem missa úr vinnu vegna slyss eiga rétt á greiðslu vegna tekjumissis. Greiddar eru bætur fyrir tekjutap frá slysdegi eftir að veikindaréttur hjá vinnuveitanda er tæmdur og þar til tjónþoli verður vinnufær aftur. En annað gildir ef ekki er að vænta frekari bata.


2.  ÞJÁNINGABÆTUR

Staðlaðar bætur fyrir þann tíma sem tjónþoli telst vera veikur vegna slysaáverkanna.


3.  MISKABÆTUR 

Staðlaðar bætur með hliðsjón af því hversu miklir slysaáverkarnir eru út frá læknisfræðilegu sjónarmiði svo og með hliðsjón af þeim erfiðleikum sem þeir valda í lífi tjónþola.


4.  VARANLEG ÖRORKA

Valdi slys varanlegri skerðingu á starfsorku greiðir tryggingafélag bætur vegna varanlegrar örorku. Um er að ræða bætur fyrir framtíðartekjutap vegna varanlegrar skerðingar á aflahæfi sem slysaáverkarnir hafa í för með sér. Slíkt tekjutap reiknast út frá aldri tjónþola og tekjum hans síðastliðin þrjú ár fyrir slysið. Miðað er við ákveðin lámarkslaun í þeim tilfellum, sem tjónþoli hefur verið tekjulítill síðustu þrjú ár fyrir slys.


Sendu okkur fyrirspurn
og við höfum samband um hæl.

Þú getur einnig haft samband símleiðis í síma 547 4700
eða sent okkur fyrirspurn á febaetur@febaetur.is.